Ísland Got Talent

Music | Talent | Dance | Competition

Station:
Stöð 2 (IS)

Status:
New Series

Start:
Jan/26/2014

Rating:
0/10 from 0 users

Það er sjónvarpsmaðurinn góðkunni Auðunn Blöndal sem verður í hinu vandasama hlutverki kynnisins. Auddi hefur stjórnað einum vinsælasta útvarpsþætti landsins, FM95BLÖ, undanfarið en hefur einnig verið einn af vinsælustu sjónvarpsmönnum landsins undanfarin ár.

Dómararnir í keppninni eru ekki af verri endanum en dónmefndin telur fjóra hæfileikaríka einstaklinga. Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Bubbi Morthens, hefur munninn fyrir neðan nefið auk áratugareynslu í tónlistarheiminum, sem og að dómarastörfum af þessu tagi. Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur, þrátt fyrir ungan aldur, gefið út plötur, og stjórnað sjónvarpsþáttum auk þess sem tónlistarmyndbönd hennar hafa vakið athygli.
Þúsundþjalasmiðurinn Jón Jónsson er ekki bara vinsæll tónlistarmaður, blaðamaður og knattspyrnumaður, hann er einnig afar viðkunnalegur. Og þá er ótalin fyrrum menntamálaráðherra landsins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem kemur ekki til með að liggja á skoðunum sínum. (Source: Stöð 2)



Ísland Got Talent Next Episode Air Date

There is no Next Episode of Ísland Got Talent planned.